Halló kæra fólk!
Sá þetta á öðru bloggi.
Hvers vegna bjó Guð til mömmur?
Elísa svaraði: Til að við gætum fæðst.
Hvernig bjó Guð til mömmurnar?
Hann skapaði þær!
Úr hverju eru mömmur búnar til?
Úr kjöti.
Af hverju gaf Guð þér þína mömmu en ekki einhverja aðra?
Af því að hann vildi að ég væri barnið þitt.
Hvernig var mamma þín þegar hún var lítil stelpa?
Eins og hún er núna.
Hvað þurfti mamma þín að vita áður en hún giftist pabba
þínum?
Að hún ætti að vera góð og vinaleg og ekki öskra! (ótrúlega geta
börn verið hreinskilinn.)
Hver ræður heima hjá þér ?
Mamma og pabbi, sérstaklega mamma.
Hver er munurinn á mömmum og pöbbum?
Pabbinn er stærri, en mamman er minni.
Hvað gerir mamma þegar hún á frí?
Hún gerir heimaverkefni. (veit ekki hvað hún á við)
Hvað þarf mamma þín til að vera fullkominn?
Vera góð.
Ef þú mættir breyta einhverju hjá mömmu þinni hvað yrði það
þá?
Vil ekki breyta henni!
Kveðja Ásta!